Þar sem engar almennar æfingar eru á Iðavöllum frá september til byrjun apríl er mögulegt fyrir hinn almenna félagsmann að fylgjast með ef þeir sem hafa lyklavöld að Iðavöllum eru að fara uppeftir og vilja bjóða öðrum að njóta góðs af.
Þess vegna eru þeir sem eru æfingastjórar á Iðavöllum og ætla að fara að æfa sig utan auglýstra æfingatíma beðnir um að bjóða öðrum að koma og æfa með viðkomandi á tilteknum tíma.
Slíkar æfingar eru alfarið á forsendum þess sem býður og hann hefur engum skyldum að gegna umfram það sem hann ætlar sér sjálfur.
Það er hægt að skoða hver og hvenær viðkomandi æfingastjóri er á Iðavöllum með því að fara á heimasíðu félagsins undir "Er hægt að skjóta í dag"