- Öll meðferð annarra skotvopna en haglabyssu er bönnuð.
- Byssur skulu hafðar opnar og óhlaðnar þar til viðkomandi hefur tekið sér stöðu á skotpalli.
- Engar ólar eru leyfðar á byssum.
- Ef skotmaður vill munda lokaða en óhlaðna byssu skal hann haga sér sem um hlaðan byssu sé að ræða sjá grein 2.
- Hámark er leyfilegt að 6 skyttur séu á vellinum samtímis.
- Bannað er að láta hunda ganga lausa á svæðinu.
- Stranglega er bannað að henda rusli eða öðru á svæðinu.
- Öll patrónuhylki skal tína saman áður en æfingu líkur.
- Stranglega er bannað að skjóta á fugla eða önnur dýr á eða í næsta nágrenni vallarins.
- Æfingastjóri er einráður á svæðinu á meðan á æfingu stendur.
- Allt skvaldur hávaði og óþarfa umgangur er bannaður umhverfis skotpalla á meðan æfing stendur.
- Eingöngu er leyfilegt að nota skot með haglastærð minni en 7.
Brot á reglum þessum getur varðað brottvísun af svæðinu í lengri eða skemmri tíma, grófum brotum verður hugsanlega vísað til lögreglustjóra.