← Fréttir
Arnór Logi tryggði Íslandi sæti á Evrópuleikunum 2027!
5. október 2026
Arnór Logi Uzureau, keppnismaður í SÍH, náði frábærum árangri á Evrópumeistaramótinu í skeet í Grikklandi. Hann lauk keppni í 10. sæti með 121 dúfu af 125 og tryggði Íslandi pláss á Evrópuleikunum 2027 eftir bráðabana.
Mótið endaði með óvæntum hætti, því Arnór var kominn aftur upp á hótel þegar hann var kallaður aftur á keppnisstað til að keppa um Evrópuleika sætið.
Við hjá SÍH óskum Arnóri innilega til hamingju með árangurinn og erum stolt af okkar manni!
Hér má lesa frétt RÚV: