Arnór Logi stefnir á Ólympíuleikana
12. nóvember 2026
RÚV birti í dag skemmtilega umfjöllun um Arnór Loga Uzureau, keppnismann okkar í skeet. Arnór ætlaði sér lengi vel að verða atvinnumaður í handbolta, en eftir að faðir hans benti honum á Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar kviknaði áhuginn á skotfimi. Þegar hann komst að því að skeet væri ólympíugrein var stefnan sett alla leið.
Arnór hóf ekki að æfa af fullum krafti fyrr en árið 2022 en hefur síðan lagt mikið á sig, meðal annars með æfingum í Bandaríkjunum undir handleiðslu Vincents Hancock, fjórfalds ólympíumeistara í skeet. Ferðina fjármagnaði hann á gamla góða mátann, með sölu á klósettpappír og dósasöfnun, auk stuðnings styrktaraðila.
Í lok október var tilkynnt að Arnór væri í hópi þeirra íþróttamanna sem hljóta starfslaun afreksíþróttafólks næstu 12 mánuði. Það er mikil viðurkenning á þeirri vinnu sem hann hefur lagt á sig, ekki síst eftir frábæran árangur á EM í Grikklandi í haust þar sem hann tryggði Íslandi sæti á Evrópuleikunum 2027.
Við hjá SÍH óskum Arnóri innilega til hamingju með starfslaunin og hlökkum til að fylgjast með honum á leiðinni á Ólympíuleikana!
Hér má lesa frétt RÚV: